Skrif
← Til baka

Þjónustuskilmálar

Síðast uppfært: 18. mars 2026

1. Almenn ákvæði

Þessir þjónustuskilmálar („skilmálar") gilda um notkun á hugbúnaði og þjónustu Skrif ehf. („Skrif", „við", „okkar"). Með skráningu eða notkun þjónustunnar samþykkir notandi („þú", „notandi") þessa skilmála í heild sinni.

Þjónustan er ætluð fyrirtækjum og einstaklingum í atvinnurekstri til notkunar í viðskiptalegum tilgangi. Með skráningu staðfestir þú að þú notir þjónustuna í tengslum við atvinnurekstur þinn eða starf.

Skrif ehf. · kt. 541025-2190 · Ísland · skrif@skrif.com

2. Lýsing á þjónustu

Skrif er stafrænn bókari sem aðstoðar bókara, bókhaldsstofur og atvinnurekendur í daglegri bókhaldsvinnu. Í gegnum gervigreindarspjall getur notandi m.a. stofnað bókhaldsfærslur, reikninga, kostnað, viðskiptavini, lánardrottna og starfsmenn, hlaðið upp skjölum, flett upp gengi og reglum og fengið svör við spurningum um bókhald og rekstur. Allar aðgerðir krefjast samþykkis notanda áður en þær eru framkvæmdar. Þjónustan afstemmir sjálfvirkt bankahreyfingar og kreditkortafærslur við bókhaldsgögn, með stuðningi gervigreindar og möguleika á handvirkri afstemmingu. Skrif greinir og vistar upplýsingar um fyrirtæki notanda til að veita sérsniðna þjónustu. Þessi greining er eingöngu unnin í þágu notanda.

Skrif tengist bókhaldskerfum (t.d. Payday, Dk Plus) og bönkum (t.d. Arion banka, Íslandsbanka og Landsbankanum) í gegnum vefþjónustur þeirra og samstillir gögn sjálfvirkt. Skrif les eingöngu gögn og framkvæmir engar greiðslur eða fjárhagslegar aðgerðir. Skrif er ekki bókhaldskerfi í skilningi reglugerðar nr. 505/2013 og viðkomandi bókhaldskerfi bera ábyrgð á skráningu og varðveislu bókhaldsgagna.

Skrif kemur ekki í stað löggiltra endurskoðenda, bókara eða skattaráðgjafa. Þjónustan hentar best þeim sem hafa grunnþekkingu á bókhaldi eða vinna með fagaðilum. Skrif getur veitt ráðgjöf og tillögur en notandi ber alltaf ábyrgð á að yfirfara og staðfesta allar upplýsingar.

3. Notkun gervigreindar

Skrif notar gervigreindarþjónustur frá þriðju aðilum (þ. á m. Anthropic, OpenAI, Google og Fireworks AI) til að knýja spjallið, greina fjárhagsgögn, afstemma bankahreyfingar o.s.frv. Nánari upplýsingar um gagnavinnslu er að finna í persónuverndarstefnu okkar.

Notandi skal hafa eftirfarandi í huga varðandi gervigreindarvinnslu:

  1. Allar tillögur frá Skrif, hvort sem um ræðir bókhaldsfærslur, flokkanir eða svör í spjalli, eru unnar af gervigreind og geta verið rangar, ófullkomnar eða misvísandi.
  2. Notandi ber fulla ábyrgð á yfirferð og staðfestingu allra gervigreindartillagna áður en þær eru nýttar, einkum varðandi bókhaldsfærslur, afstemmingar og fjárhagslegar samantektir.
  3. Gervigreindarsvör teljast ekki fagleg bókhalds-, skatta- eða fjármálaráðgjöf. Notandi ber ábyrgð á öllum ákvörðunum sem teknar eru á grundvelli upplýsinga frá þjónustunni.
  4. Þegar notandi notar spjallviðmót eða sjálfvirkar aðgerðir Skrif á hann samskipti við gervigreindarkerfi, ekki mannlegan fagaðila.

Enginn af gervigreindarþjónustuveitendum okkar þjálfar eða mun þjálfa líkön sín á gögnum notenda.

4. Reikningur og aðgangur

Notandi skráir sig í gegnum innskráningarþjónustu (t.d. Google) og ber ábyrgð á að skráningarupplýsingar séu réttar og uppfærðar. Notandi ber ábyrgð á öllum aðgerðum sem fara fram undir reikningi hans.

Notandi þarf að vera að minnsta kosti 18 ára, eða hafa samþykki forráðamanns.

Hver notandi getur stofnað fyrirtæki í Skrif og boðið öðrum að taka þátt. Eigandi fyrirtækis ber ábyrgð á aðgangi meðlima og þeim gögnum sem unnin eru innan þess.

5. Gögn notanda

Notandi er og verður eigandi allra gagna sem hann setur inn í Skrif eða sem sótt eru á hans vegum úr bönkum eða bókhaldskerfum. Notandi veitir Skrif takmarkaðan, afturkallanlegan leyfisrétt til að hýsa, geyma og vinna úr gögnunum eingöngu í þeim tilgangi að veita þjónustuna.

Til að veita þjónustuna sendir Skrif gögn (t.d. lýsingar á bankahreyfingum, reikningsheiti og fjárhæðir) til gervigreindarþjónustuveitenda. Um meðferð persónuupplýsinga gildir persónuverndarstefna okkar sem telst hluti þessara skilmála.

Skrif ber trúnaðarskyldu gagnvart fjárhagsgögnum notanda og meðhöndlar þau í samræmi við persónuverndarstefnu okkar.

6. Áskrift og greiðslur

Skrif er greidd þjónusta og verð, innheimtutímabil og greiðsluskilmálar eru kynntir notanda áður en áskrift tekur gildi. Notandi getur breytt áskriftarleið eða sagt upp áskrift hvenær sem er í stillingum reiknings síns. Uppfærslur taka gildi strax en lækkanir og uppsagnir taka gildi í lok yfirstandandi innheimtutímabils og leysa ekki undan greiðsluskyldu sem þegar er fallin til.

7. Skyldur notanda

Notandi samþykkir að nota þjónustuna eingöngu í lögmætum tilgangi og í samræmi við þessa skilmála. Eftirfarandi er óheimilt:

  1. Notkun í tengslum við svik, peningaþvætti eða aðrar ólögmætar athafnir.
  2. Tilraunir til að öðlast óheimilan aðgang að kerfinu eða gögnum annarra notenda.
  3. Sjálfvirk gagnaöflun, skrap eða önnur kerfisbundin gagnasöfnun án skriflegs leyfis.
  4. Afþýðing eða önnur endursmíði hugbúnaðarins.
  5. Að deila eigin reikningi með öðrum.

Brot á þessum ákvæðum getur leitt til þess að reikningur sé lokaður án fyrirvara og tilkynnt til lögbærra yfirvalda eftir atvikum.

8. Hugverkaréttur

Allur hugbúnaður, vörumerki, hönnun og annað hugverk sem tengist Skrif er eign Skrif ehf. Skrif er skráð vörumerki hjá Hugverkastofu. Hugverkin eru vernduð af höfundarrétti skv. lögum nr. 73/1972 og lögum um vörumerki nr. 45/1997.

Á meðan áskrift er virk hefur notandi leyfi til að nota þjónustuna í eigin rekstri og starfi. Notandi má bjóða öðrum í sitt fyrirtæki innan þjónustunnar, en óheimilt er að deila eigin reikningi með öðrum.

9. Fyrirvari og ábyrgðartakmarkanir

Þjónustan er veitt eins og hún er hverju sinni, án sérstakra ábyrgða umfram það sem lög kveða á um. Skrif ehf. ber ekki ábyrgð á óbeinu eða afleiddu tjóni sem kann að verða vegna notkunar á þjónustunni, þar á meðal vegna:

  1. Taps sem má rekja til notkun þjónustunnar.
  2. Sekta eða viðurlaga vegna ákvarðana sem teknar eru á grundvelli þjónustunnar.
  3. Villa í gögnum sem sótt eru úr bönkum eða bókhaldskerfum.
  4. Truflana á þjónustu, tafa á samstillingu eða gagnataps.

Bótaábyrgð Skrif ehf. takmarkast við þá fjárhæð sem notandi hefur greitt fyrir þjónustuna á síðustu 12 mánuðum.

Þessar takmarkanir eiga ekki við um tjón af völdum svika, stórfellds gáleysis eða vísvitandi vanrækslu.

10. Skaðleysi

Notandi skuldbindur sig til að halda Skrif ehf., hluthöfum, starfsmönnum og tengdum aðilum skaðlausum af kröfum, tjóni eða kostnaði sem verður vegna notkunar notanda á þjónustunni, brota á þessum skilmálum eða brota á réttindum annarra.

11. Uppsögn

Notandi getur breytt áskriftarleið sinni eða sagt upp áskrift hvenær sem er í stillingum reiknings síns á skrif.com. Uppfærslur taka gildi strax. Lækkanir og uppsagnir taka gildi í lok yfirstandandi innheimtutímabils og notandi skuldar gjöld sem þegar hafa fallið til.

Skrif áskilur sér rétt til að loka á eða takmarka aðgang að reikningi hvenær sem er og án fyrirvara, t.d. vegna brota á skilmálum eða öryggisáhættu.

Eftir uppsögn fær notandi hæfilegan frest til að sækja gögn sín. Ákvæði um ábyrgðartakmarkanir, skaðleysi og hugverkarétt halda gildi sínu eftir uppsögn.

12. Óviðráðanlegar aðstæður

Hvorugur aðili ber ábyrgð á töfum eða truflunum sem stafa af aðstæðum sem hann ræður ekki við, svo sem náttúruhamförum, farsóttum, verkföllum, netárásum, rafmagns- eða fjarskiptabilunum eða aðgerðum yfirvalda. Sá sem verður fyrir slíkum aðstæðum skal tilkynna hinum aðilanum um þær eins fljótt og auðið er.

13. Lokaákvæði

Þessir skilmálar lúta íslenskum lögum og deilur vegna þeirra skulu lagðar fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur.

Við uppfærum þessa skilmála eftir þörfum og dagsetningin efst á síðunni endurspeglar alltaf nýjustu útgáfu. Ef um verulegar breytingar er að ræða tilkynnum við þær sérstaklega með a.m.k. 30 daga fyrirvara.

Reynist einstakt ákvæði þessara skilmála ógilt hefur það ekki áhrif á gildi annarra ákvæða.

Þessir skilmálar ásamt persónuverndarstefnunni mynda allan samninginn milli notanda og Skrif.

14. Hafðu samband

Sendu okkur tölvupóst á skrif@skrif.com. Við svörum innan 30 daga.